Fréttasafn
|10.11.2026
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember. Minningarathafnir verða kl. 14:00 m.a. við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og víða um land hjá einingum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og öðrum viðbragðsaðilum.

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn 15. nóvember kl. 14:00
Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Í ár verður sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna en hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa.
Lag dagsins hér á landi er I Think of Angels sem KK samdi til minningar um systur sína sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992 og er stefnt á að það verði spilað á öllum útvarpsstöðvum landsins kl. 14:00.
Frá því að fyrsta banaslysið var skráð á Íslandi 25. ágúst 1915, hafa þann 20. október 2026 samtals 1643 einstaklingar látist í umferðinni hér á landi. Mun fleiri hafa slasast alvarlega, tekist á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.
Að baki minningardeginum standa Samgöngustofu, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ.